Vörulýsing
Kastehelmi glerlínan sem Oiva Toikka hannaði árið 1964 er ekki bara falleg heldur einnig skemmtileg lausn á
þekktu vandamáli í glervöruframleiðslu en vandamálið er að losna við för í glerinu, sem koma þegar að
vélar pressa það saman. Toikka fann lausn á þessu vandamáli með því að setja glerdropa yfir förin og út kom þessi skemmtilega hönnun.
Hún minnir óneitanlega á dögg í íslenskri náttúru, en finnska orðið Kastehelmi þýðir einmitt daggardropar.
Kastehelmi glös tvö saman í pakka
Litur: Linen
Hæð: 9,6 cm
Breidd: 9 cm
Rúmar: 30 cl
Nánari tæknilýsing