Iittala búðin Kringlunni | ibudin.is

Viðskiptaskilmálar...

Vinsamlega lestu yfir viðskiptaskilmála okkar áður en þú verslar í vefverslun okkar. Með því að versla við vefverslun okkar samþykkir þú þessa skilmála.

Verð

Verð í vefverslun eru öll gefin upp með virðisaukaskatti og eru því heildarverð. Vinsamlega athugið að verð í vefverslun geta breyst án fyrirvara vegna gengismála, rangra verðupplýsinga eða prentvillna.

Greiðslumöguleikar

Boðið er uppá að greiða með debetkorti, kreditkorti og netgíró í vefverslun – á vefslóð www.ibudin.is

Afhendingarskilmálar

Hægt er að sækja vörurnar í verslun okkar í Kringlunni, eða fá sent með Póstinum á næsta pósthús/póstbox eða heim að dyrum.

Afgreiðsla og afhending pantana tekur alla jafna 1-2 virka daga og eru flestar pantanir afgreiddar samdægurs eða daginn eftir. Þó getur komið fyrir að vörur séu tímabundið uppseldar og munum við þá strax hafa samband í síma eða með tölvupósti. Vörur sem eru uppseldar í lengri tíma eru annaðhvort merktar sem uppseldar eða fjarlægðar úr vefverslun.

Velji viðskiptavinur að fá pöntun senda verður pöntunin send með Póstinum heim að dyrum eða á næsta pósthús/póstbox gegn gjaldi sem reiknast áður en gengið er frá pöntun. Pantanir sendar með Póstinum eru alla jafna afhentar til flutningsaðila næsta virka dag.

Af öllum pöntunum dreift af Póstinum gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Póstsins um afhendingu vörunnar. Frekari upplýsingar má finna á vefsíðu Póstsins. Iittala búðin ber enga ábyrgð á tjóni eða töfum í sendingu. Í undantekningartilfellum er hægt að biðja um að sendingar fari á vöruflutningamiðstöðvar staðsettar í Reykjavík.

Sé vara uppseld eða önnur atriði tefja afgreiðslu pöntunar er haft samband við viðskiptavin eins fljótt og hægt er, með upplýsingum um hvenær pöntun verður afgreidd og með hvaða hætti.

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur

365 daga skilaréttur af vörum ef þær eru í óopnuðum umbúðum gegn framvísun kaupnótu. Skilaréttur þessi gildir ekki af sérpöntunum eða notuðum vörum.

14 daga skilaréttur af vörum, þó búið sé að opna umbúðir og prófa, gegn framvísun kaupnótu. Viðskiptavinur ber ábyrgð á þeirri rýrnun á verðgildi vörunnar sem stafar að meðferð hennar, sem ekki telst nauðsynleg til að staðfesta eiginleika og virkni. Enn fremur þurfa allir fylgihlutir og handbækur að fylgja með vöru.

Í boði er endurgreiðsla eða inneignarnóta.

Vörum með skiptimiða er hægt að skila og fá inneignarnótu ef þær eru í óopnuðum umbúðum, svo fremi að varan sé enn í sölu og þá gildir það verð sem er á þeim degi sem skilað er.

Hægt er að endursenda vöru í Iittala búðina, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík. Endursending vöru er á ábyrgð og kostnað kaupanda nema hann hafi fengið ranga eða skemmda vöru afhenda. Að öðru leyti vísast um neytendakaup nr. 48/2003.

Höfundaréttur og vörumerki

Texti, myndir og allt efni á www.ibudin.is eru í eigu Ásbjörns Ólafssonar ehf. Öll afritun og endurdreifing er bönnuð nema með skriflegu leyfi. www.ibudin.is er skráð vörumerki og má ekki nota það í tengslum við neina vöru eða þjónustu.

Trúnaður

Öll söfnun og meðhöndlun persónuupplýsinga þinna eru unnin í samræmi við lög nr. 77/200 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Til að við getum uppfyllt þá þjónustu sem er í boði þegar verslað er í vefversluninni þá þurfum við að fá upplýsingar um nafn þitt, heimilisfang, netfang og símanúmer. Við vistum engar greiðsluupplýsingar aðrar en hvaða greiðslumiðil var notast við þegar greitt var fyrir pöntunina.

Við deilum ekki persónuupplýsingum til þriðja aðila nema til að uppfylla þá þjónustu sem þú hefur valið, t.d. til að uppfylla óskir um heimsendingarþjónustu.

Varnarþing

Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir íslenskum dómstólum.

Hafa samband: Velkomið að hafa samband í gegnum netfangið sala@ibudin.is eða í síma 568-0606 ef einhverjar spurningar vakna.

Öryggi og persónuvernd á vefnum

Þegar þú notar vef www.ibudin.is þá verða til upplýsingar um heimsókn þína. Iittala búðin miðlar þeim ekki til annarra.

Iittala búðin virðir friðhelgi persónuupplýsinga viðskiptavina sinna. Með því að heimsækja vefinn lýsir þú þig samþykka/n skilmálum okkar um persónuvernd og öryggi.

Vafrakökur (e. Cookies)?

Ibudin.is notar vafrakökur til að viðskiptavinir okkar fái bestu mögulegu upplifun á vefnum og til að vefverslunin virki eðlilega.

Vafrakökur (e. Cookies) eru litlar skrár sem hlaðast þegar notendur fara inn á ákveðin vefsvæði og vistast á tækið sem notast er við. Þessar vafrakökur hjálpa vefsíðunni að greina á milli notenda á vefnum og hvernig þeir vilja nota vefinn.

Við notum einnig vafrakökur til að greina umferðina á okkar vefsvæði og til að beina auglýsingum til okkar markhópa. Við notum Google Analytics til að mæla umferð um vefinn okkar, en þær upplýsingar eru ekki persónugreinanlegar. Þá notum við einnig Facebook og Google Ads til að birta auglýsingar til okkar notenda, en þar er heldur ekki notast við persónugreinalegar upplýsingar.

Með því að nota síðuna samþykkir þú notkun vefs okkar á vafrakökum.

Notkun Iittala búðarinnar á vafrarakökum

Með því að samþykkja skilmála okkar um notkun á cookies er fyrirtækinu m.a. veitt heimild til þess að:

  • Bera kennsl á notendur sem hafa komið áður á vefinn og sníða leit og þjónustu við gestina til samræmis við auðkenninguna.
  • Að gera notendum auðveldara að vafra um vefsvæðið, til dæmis með því að muna eftir fyrri aðgerðum.
  • Að þróa og bæta þjónustu vefsvæðisins með því að fá innsýn í notkun hennar.
  • Að birta notendum auglýsingar.
  • Að safna og senda tilkynningar um fjölda notenda og umferð um svæðið.

Iittala búðin notar Google Analytics til vefmælinga. Við hverja komu inn á vefinn eru nokkur atriði skráð, svo sem tími og dagsetning, leitarorð, frá hvaða vef er komið og gerð vafra og stýrikerfis. Þessar upplýsingar má nota við endurbætur á vefnum og þróun hans, t.d. um það efni sem notendur sækjast mest eftir og fleira. Engum frekari upplýsingum er safnað um hverja komu og ekki er gerð tilraun til að tengja slíkar upplýsingar við aðrar persónugreinanlegar upplýsingar.

Þjónusta Siteimprove er nýtt á vefnum með svipuðum hætti og Google Analytics, til dæmis til telja heimsóknir og til að finna brotna tengla sem notendur smella á sem og bæta upplifun notenda inn á vefnum.

Persónulegar upplýsingar sem við söfnum

Mögulegt er að við söfnum persónugreinanlegum upplýsingum um þig, svo sem nafni, heimilisfangi, netfangi og símanúmeri í tengslum við afgreiðslu á pöntun frá þér eða vegna annarra samskipta við þig. Til dæmis skráum við þær persónugreinanlegu upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að koma til skila þeirri vöru sem þú kaupir. Einnig fjármálatengdar upplýsingar og heimilisfang vegna reiknings, og einstaklingsupplýsingar, svo sem netföng, heimilisfang, símanúmer og viðtökustað vörusendingar. Fjármálatengdar upplýsingarnar eru nýttar eingöngu til að innheimta greiðslu fyrir þá vöru sem þú kaupir. Allar persónuupplýsingar sem kunna að að verða til við notkun á kökum verða meðhöndlaðar og unnið með þær í samræmi við skilmála GDPR frá 2018.

Ef þú skráir þig á póstlista eða gefur upp netfangið þitt sendum við þér fréttabréf. Ef þú færð nú þegar tölvupósta frá fyrirtækinu en vilt hætta að fá þá er hægt að senda okkur póst á sala@ibudin.is.

Neðst á öllum markpósti sem Iittala búðin sendir er einnig hnappur „afskrá af póstlista“ sem býður upp á að láta fjarlægja það netfang sem pósturinn var sendur á af póstlistanum.

Að versla á vefnum okkar

Við leggjum okkur fram um að vernda persónulegar upplýsingar með því að nota þá öryggisstaðla sem viðeigandi eru eftir eðli upplýsinganna, hvort sem þær upplýsingar eru fengnar og/eða geymdar fyrir milligöngu netsins eða ekki. Við gerum allt sem skynsamlegt og viðeigandi getur talist til að koma í veg fyrir að slíkar upplýsingar glatist, verði stolið, óviðkomandi fái aðgang að þeim, þær verði opinberaðar, afritaðar, notaðar, þeim breytt eða eytt. Við leggjum sérstaka áherslu á að tryggja öryggi upplýsinga þegar keyptar eru vörur í gegnum vefsíðuna. Vefurinn notast við SSL-skilríki sem þýðir að öll samskipti eru yfir dulritað burðarlag. Það gerir gagnaflutning í gegnum hann öruggari.

SSL skilríki varna því að óprúttnir aðilar komist yfir gögn sem send eru í gegnum vefinn, eins og t.d. lykilorð. Með skilríkjunum eru upplýsingar sem sendar eru milli notenda vefmiðlara dulkóðaðar og gögnin sem flutt eru á milli skila sér á réttan stað á öruggan máta.