Iittala búðin Kringlunni | ibudin.is

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur

Kaupandi hefur 14 daga til þess að hætta við kaupin og er varan endurgreidd að fullu ef neðangreind skilyrði eru uppfyllt. Varan skal vera ónotuð, henni sé skilað í góðu lagi, í upprunalegum umbúðum og að greiðslukvittun fylgi með. Skilafresturinn hefst þegar varan er afhend skráðum viðtakanda. Hægt er að endursenda vöru í Iittala búðina, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík. Endursending vöru er á ábyrgð og kostnað kaupanda nema hann hafi fengið ranga eða skemmda vöru afhenda. Að öðru leyti vísast um neytendakaup nr. 48/2003. Vörum með skiptimiða er hægt að skila og fá inneignarnótu ef þær eru í óopnuðum umbúðum, svo fremi að varan sé enn í sölu og þá gildir það verð sem er á þeim degi sem skilað er.