Þakkar þriðjudagur (e. Giving Tuesday) er alþjóðlegt fyrirbæri sem hófst árið 2012 og hefur þann einfalda tilgang að hvetja fólk til þess að gera góðverk. Fyrirbærið hefur ekki farið hátt hér á landi en nú hafa Heimilistæki og tengdar verslanir ákveðið að halda daginn hátíðlegan í fyrsta sinn.
Í dag, þriðjudaginn 28. nóvember mun 10% af allri sölu verslana og netverslana Heimilistækja, Tölvulistans, Raflands, Kúnígúnd, Byggt og búið og Iittala búðarinnar því renna til endurhæfingar- og stuðningsmiðstöðvar Ljóssins.
Með því að gera Þakkar Þriðjudegi hátt undir höfði viljum við skila þakklæti út í samfélagið og gefa til baka í kjölfarið á stórum tilboðsdögum í nóvember. Þegar kom að því að velja góðgerðarmálið var úr mörgu að velja enda þörf á stuðningi víða bæði hérlendis og erlendis. Því lá beinast við að kalla eftir tillögum frá starfsfólkinu okkar um góðgerðarmál sem það vildi styrkja á Þakkar þriðjudegi. Næst voru valin 5 góðgerðarfélög sem starfsfólk kaus loks á milli. Í ár hlýtur því Ljósið styrkinn frá okkur, en Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þess.
Þangað getur fólk leitað til þess að fá aðstoð við að byggja upp þrek, auka virkni og bæta lífsgæði sín. Ljósið býður upp á fjölbreytta dagskrá; m.a. námskeið, fræðslufundi, líkamsrækt, nudd og margt fleira sem gagnast krabbameinsgreindum og aðstandendum þeirra.
Á vefsíðu Ljóssins má finna frekari upplýsingar um starfsemina.
10% af allri sölu verslana Iittala búðarinnar renna í dag til Ljóssins.