Iittala Teema krús 0,3ltr | ibudin.is

Iittala Teema krús 0,3ltr

IIT-1026240

Teema borðbúnaðarlínan frá Iittala var hönnuð af Kaj Franck árið 1952. Vörulínan er í senn einföld, fjölhæf, endingargóð og tímalaus. Stellið er fáanlegt í nokkrum litum sem gaman er að raða saman og hún blandast einnig mjög vel með öðrum borðbúnaðarlínum frá Iittala. Litir eru uppfærðir reglulega til að halda Teema litasamsetningunum í samræmi við tískustrauma hverju sinni.

Liturinn powder er fágaður, heitur og hlutlaus litur sem hefur fallega mýkt. Hann er góður bakgrunnur undir öll litríku innihaldsefnin sem hægt er að nota í matargerð ásamt því sem hann leyfir matnum að njóta sín. Powder blandast fallega við aðra liti í Teema línunni.