Iittala búðin Kringlunni | ibudin.is

Við tökum þátt í Mottumars

Við hjá Iittala búðinni erum stolt af því að taka þátt í Mottumars og leggja okkar af mörkum í baráttunni gegn krabbameini. Í mars munu 20% af sölu á Loving Care, Sweethearts og Love 30 ára afmælis­línunni frá Moomin Arabia renna til Mottumars og styðja þannig mikilvægt starf Krabbameinsfélagsins.

Krúsirnar fanga hlýjuna, húmorinn og ástina sem einkenna Múmíndal. Sweethearts línan sýnir skemmtilegt og elskulegt samband Múmínsnáða og Snorkstelpunnar og minnir okkur á að við erum alltaf sterkari saman. Loving Care línan dregur fram kjarnann í anda Múmínfjölskyldunnar, þar sem ást og umhyggja ná til allra. Myndskreytingin sýnir hjartnæmt ævintýri þar sem saklaus lautarferð breytist í hugrakka björgun. Svo fagnar Love línan, allra vinsælasta Moomin línan, 30 ára afmæli í ár og af því tilefni var sett í sölu tímabundin afmælislína. 

Nú er því kjörið tækifæri til að eignast þessar fallegu vörur og styrkja gott málefni um leið!

Love 30 ára afmælislínan

Sweethearts og Loving Care