Engin skilaboð...
Mín síða
Engin fyrirtæki í boði
Búa til persónulegan aðgang
Búðu til fyrirtækjareikning
Útskrá



Vörulýsing
Ultima Thule línan var hönnuð af Tapio Wirkkala árið 1968. Við hönnun línunnar sótti Wirkkala innblástur
til Lapplands en línan vísar í bráðinn klaka. Sagan segir að til hafi verið eyjan Ultima Thule sem
staðsett var langt í norðri. Hún hafi verið grafin í ís og snjó og þar hafi sólin aldrei sést.
Ultima Thule vörulínan er öll framleidd í Finnlandi. Vörulínan inniheldur m.a. glös, diska, skálar,
karöflur og kertastjaka.
Ultima Thule freyðivínsglös tvö stykki saman í pakka.
Rúmar: 18 cl
Hæð: 11,5 cm
Breidd: 5,6 cm
Má fara í uppþvottavél max 50°C
Nánari tæknilýsing