Kastehelmi glerlínan sem Oiva Toikka hannaði árið 1964 er ekki bara falleg heldur einnig skemmtileg lausn á þekktu vandamáli í glervöruframleiðslu en vandamálið er að losna við för í glerinu, sem koma þegar að vélar pressa það saman. Toikka fann lausn á þessu vandamáli með því að setja glerdropa yfir förin og út kom þessi skemmtilega hönnun.
Hún minnir óneitanlega á dögg í íslenskri náttúru, en finnska orðið Kastehelmi þýðir einmitt daggardropar.
Kastehelmi krukka gler Litur: Glær Þvermál: 11,6 cm Hæð: 5,7 cm
Kastehelmi vörulínan frá Iittala var hönnuð af Oiva Toikka árið 1964. Hún minnir óneitanlega á dögg í íslenskri náttúru, en finnska orðið Kastehelmi þýðir einmitt daggardropar.