iittala ESSENCE diskur 27cm white | ibudin.is

iittala ESSENCE diskur 27cm white

IIT-1028197

Hvítur hringlaga diskur sem er flottur til að bera fram mat. Notaðu hann í kokteilboðinu undir osta, berðu fram meðlæti, franskar kartöflur, tapas eða smákökur í matarboðinu. Má einnig nota sem disk við borðstofuborðið.

Í byrjun árs 2021 stækkaði Essence línan úr glasalínu yfir í heila borðbúnaðarlínu. Settir voru á markað einstakir nýjir hlutir sem þjóna allir fleiri en einum tilgangi. Með Essence línunni er haldið utan um allar þarfir við matarborðið, hvort sem er við hversdagsleg eða hátíðleg tilefni.

Til að koma í veg fyrir fyrirfram skilgreinda notkunarmöguleika hvers og eins hlutar lýsa nöfnin stærð og efni frekar en hlutverki. Blandað er saman hvítu keramíki við litað gler til að minna á uppruna Iittala sem glerframleiðandi. Einfaldar línur keramíksins ásamt lit og áferð glersins gera vörulínuna hófstillta en um leið fjölhæfa og notendavæna.